UppskriftaWWWefurinn
Heim Um vefinn Leit Tenglar

  Uppskriftaflokkar
Ábætisréttir
Brauð og kökur
Drykkir
Fiskréttir
Grænmetisréttir
Kjötréttir
Óskilgreindar uppskriftir
Pizzur og pasta
Sérfæði
Smákökur og konfekt
Súpur og sósur
Í toppformi

  Góðir vinir
Pjúsarafélag Íslands (PÍ)
sér um hug- og vélbúnað og hýsir vefinn.

  Hjálpaðu til
Bættu við!
Bættu við uppskrift!
Gestabókin
Skrifaðu í gestabókina
Hugmyndabankinn
Ertu með hugmynd varðandi vefinn?

  Nýjustu uppskriftirnar
- ekkert hnoðbruð, einfalt gott
- Súkkulaðikrem á skúffuköku
- Bollur úr sætri kartöflu
- Hrísterta með karmellu og súkkulaði
- Hjónabandssælan mín,
- Marsipanbotn
- Vínarbrauð
- Rækjuréttur Oddnýjar

Prenta út
Naan-brauð Brauð og kökur
GEGGJAÐ
200 ml mjólk
2 msk sykur
1 poki þurrger eða 5 tsk
600 gr hveiti
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
4 msk ólífuolía
1 dós hrein jógúrt (180g)
1 msk meldon-salt
1 msk indversk kryddblanda(t.d. garam masala eða eitthvað annað gott krydd sem ykkur dettur í hug) ég notaði barna pizzakrydd frá Pottagöldrum
25 gr smjör
1-2 hvítlauksrif, smátt söxuð
búnt af fersku kóríander

Setjið ger og sykur saman í skál og hellið volgri mjólk yfir. Látið standa í 15 mín. Blandið síðan hveiti, salti, lyftidufti, olíu og jógúrt saman við germjólkina. Hnoðið deigið þar til það verður mjúkt og bætið við hveiti ef ykkur finnst það og blautt. Látið deigið hefast í skál í 1 klst. við stofuhita. Hitið ofninn í 275°C eða 210-220 blástur. Blandið kryddinu og saltinu saman á diski. Skiptið deiginu í 10 hluta og hnoðið kúlur úr þeim. Fletjið síðan
kúlurnar út nokkuð þunnt og þrýstið þeim ofan í kryddblönduna. Raðið brauðunum á plötuna sem er klædd bökunarpappír og bakið þau í 5-7 mínútur. Þið getið líka bakað þau á efri grind á gasgrili. Bræðið smjörið í potti og dreypið því strax yfir heit brauðin. Klippið kóríander síðan yfir allt saman. Berið strax fram meðan brauðin eru heit.
Ef maður hefur brauðin þykkari og ekkert krydd er fínt að nota þau í pítubrauð. Þetta er uppskrift úr Gestgjafanum.

Sendandi: Beta <beta@skyrr.is> 17/08/2004



Heim Um vefinn Leit Tenglar
©2001 - Ingimar og Siggi