| 250 gr. tortellini með kjötfyllingu 4-5 tómatar (u.þ.b. 300 gr)
 175 gr sveppir
 2-3 tsk grænmetiskraftur
 1 msk basilikum krydd
 2 dl rjómi
 salt
 svartur pipar
 rifinn parmesan ostur
 
 | 1. Afhýðið tómatana og gerið úr þeim mauk, t.d. í blandara (mixer). 2. Steikið sveppina á pönnu við vægan hita.  Bætið tómatmaukinu, rjómanum og grænmetiskraftinum við.  Látið þetta krauma í um 10 mínútur.  Setjið ekki lok á pönnuna.  Kryddið eftir smekk með basilíkum, saltinu og svarta piparnum.
 3. Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkanum.  Að því loknu er pastað sett í skálina, sem borin er á borð, sósunni hellt yfir það og ostinum stráð ofan á.
 
 |