UppskriftaWWWefurinn
Heim Um vefinn Leit Tenglar

  Uppskriftaflokkar
Ábætisréttir
Brauð og kökur
Drykkir
Fiskréttir
Grænmetisréttir
Kjötréttir
Óskilgreindar uppskriftir
Pizzur og pasta
Sérfæði
Smákökur og konfekt
Súpur og sósur
Í toppformi

  Góðir vinir
Pjúsarafélag Íslands (PÍ)
sér um hug- og vélbúnað og hýsir vefinn.

  Hjálpaðu til
Bættu við!
Bættu við uppskrift!
Gestabókin
Skrifaðu í gestabókina
Hugmyndabankinn
Ertu með hugmynd varðandi vefinn?

  Nýjustu uppskriftirnar
- ekkert hnoðbruð, einfalt gott
- Súkkulaðikrem á skúffuköku
- Bollur úr sætri kartöflu
- Hrísterta með karmellu og súkkulaði
- Hjónabandssælan mín,
- Marsipanbotn
- Vínarbrauð
- Rækjuréttur Oddnýjar

Prenta út
Skúffukaka með góðu súkkulaðikremi Brauð og kökur
Uppáld allra barna og fullorðinna með kaldri mjólk.
4 bollar hveiti
3 bollar sykur
2 bollar súrmjólk eða (1 1/2 bolli mjólk)
200 gr brætt smjörlíki
2 tsk matarsódi
1/2 tsk salt
4 msk (sléttar) kakó
2 egg
1 1/2 tsk vanilludropar

Súkkulaðikrem:

100 gr brætt smjör (helst ekki líki en er alveg í lagi)
2 msk vatn
2 msk kakó
300 gr flórsykur
1 eggjarauða

Kókosmjöl til skrauts

Blandið hráefnunum saman hrærivél. Ekki hræra of lengi!
Munið að ef þið hrærið of lengi þá verða kökurnar seigar þannig að gullni meðalvegurinn er fínn.

Deiginu er hellt í ofnskúffu og bakað í miðjum ofni í 1 klst. við 175-180 gráður.

Pikkið í kökuna til að kanna hvort að hún sé ekki öll bökuð.Bíðið í ca. 1 klst með að setja kremið á kökuna.

Súkkulaðikremið:

Bræðið smjörið í potti við lágan hita. Setjið vatnið og sigtað kakóið saman við og hrærið. Eggjarauðan sett saman við og hrært strax og svo sigtaður flórsykurinn. Hrært vel saman og smurt á kökuna þegar hún er orðin nógu köld. Kókosmjöli stráð yfir, magn eftir smekk. Mér finnst best að hafa mikið kókosmjöl.

Verði ykkur að góðu, krakkarnir verða ánægðir með þessa. Frábært að setja hana inn þegar verið er að þrífa og skella kreminu á þegar þrifin eru búin. Gott að setjast niður og fá sér góða kökusneð með kaldri mjólk eftir tiltektina.

Sendandi: Sædís <saedis@gi.is> 07/09/2001



Heim Um vefinn Leit Tenglar
©2001 - Ingimar og Siggi