| 1 kg hveiti 4 msk þurrger
 6 msk sykur (ca 75 gr)
 1 tsk salt
 3 stk egg
 4,5 dl mjólk
 150 gr smjörlíki
 
 Súkkulaðiglassúr: 500 gr flórsykur, 200 ml heitt vatn, 100 gr ósætt kakó, 2 msk sterkt uppáhelt kaffi eða 1 tsk. Vanilludropar eða Möndludropar. Allt eftir hvaða bragð manni finnst best.
 
 | Allt sett í skál og hnoðað saman Deigið er látið lyfta sér í 20 - 30 mínútur.
 Deigið er síðan flatt út og penslað með smjörlíki og kanilsykri stráð yfir (einnig má setja rúsínur).
 Deiginu er rúllað upp og það skorið í hæfilega stóra bita sem settir eru á smurða plötu.
 Bakað í miiðjum ofni við 200°við undir/yfirhita þar til snúðarnir eru orðnir fallega brúnir.
 
 Súkkulaðiglassúr: Öllu hrært saman og sett á snúðana.
 
 |