Botninn:
200 gr. döðlur lagðar í bleyti í 10 mín
100 gr. möndlur
100 gr. kókósmjöl
1/2 tsk. vanilluduft eða dropar
1 krukka chunky hnetusmjör (t.d. frá Whole Earth eða Sollu)
Súkkulaðibráðin:
1 dl. kókósolía (brædd í vatnsbaði)
1 dl. hreint hrákakó (lífrænt)
1/2 dl. agave sýróp
|
Botninn:
Möndlurnar maukaðar fyrst í matvinnsluvél og hitt sett út í á eftir. Þessu er þrýst niður í kökuform sem er klætt með bökunarpappír.
Sett í frysti í ca 10 - 15 mín.
Botninn tekinn út og lífrænu grófu hnetusmjöri smurt yfir, magn fer eftir smekk.
Sett aftur í frysti á meðan súkkulaðið er búið til.
Súkkulaðibráð:
Öllu hrært saman og Þessu hellt yfir og kakan geymd í frystinum.
Gott að skera niður í konfektbita og geyma hana þannig í frysti. Berist fram ísköld.
|