UppskriftaWWWefurinn
Heim Um vefinn Leit Tenglar

  Uppskriftaflokkar
Ábætisréttir
Brauð og kökur
Drykkir
Fiskréttir
Grænmetisréttir
Kjötréttir
Óskilgreindar uppskriftir
Pizzur og pasta
Sérfæði
Smákökur og konfekt
Súpur og sósur
Í toppformi

  Góðir vinir
Pjúsarafélag Íslands (PÍ)
sér um hug- og vélbúnað og hýsir vefinn.

  Hjálpaðu til
Bættu við!
Bættu við uppskrift!
Gestabókin
Skrifaðu í gestabókina
Hugmyndabankinn
Ertu með hugmynd varðandi vefinn?

  Nýjustu uppskriftirnar
- ekkert hnoðbruð, einfalt gott
- Súkkulaðikrem á skúffuköku
- Bollur úr sætri kartöflu
- Hrísterta með karmellu og súkkulaði
- Hjónabandssælan mín,
- Marsipanbotn
- Vínarbrauð
- Rækjuréttur Oddnýjar

Prenta út
Pipp kremkex Ábætisréttir
Stökkar kökur með mjúku Pipp-kremi á milli.
65 g smjör
55 g sykur
2 msk. mjólk
100 g hveiti
½ tsk. lyftiduft
2 msk. Cadbury’s kakó

Pipp-krem:
1 eggjahvíta
grænn matarlitur
215 g flórsykur
40 g (1 stykki) Pipp-súkkulaði, smátt saxað

Hrærið smjör og sykur saman í skál þar til blandan er orðin ljós og kremkennd. Bætið mjólkinni saman við. Sigtið hveiti, lyftiduft og kakó saman og blandið því varlega saman við þar til blandan er orðin að mjúku deigi. Hellið deiginu á hveitistráðan borðflöt og hnoðið það betur saman. Skiptið deiginu í tvennt. Fletjið hvorn helming út á milli tveggja arka af bökunarpappír þar til deigið er um 5 mm þykkt. Færið deigið yfir á bökunaplötu og kælið í ísskáp í 15 mínútur eða þar til það er stíft viðkomu. Hitið ofninn í 180°C.
Skerið út kringlóttar kökur (um 4 cm í þvermál) og færið þær yfir á plötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír. Bakið kökurnar í 10 mínútur og leyfið þeim að kólna.

Setjið eggjahvítuna í hreina skál ásamt grænum matarlit. Þeytið vel. Setjið flórsykurinn út í smátt og smátt, um 2 msk. í senn, og þeytið vel á milli. Bætið við meiri flórsykri ef þarf, þar til úr verður mjúkt krem. Blandið súkkulaðinu saman við. Setjið kremið í sprautupoka með stórum stút, sprautið því á helminginn af kökunum og leggið kökurnar saman.

Sendandi: Nafnlaus 29/12/2009



Heim Um vefinn Leit Tenglar
©2001 - Ingimar og Siggi