| 
 
 
    |   |   |   | 
         
          
          
            | Lagskipt súkkulaðimús með jarðaberjum og kívíi | Ábætisréttir |  
            | Glæsilegur eftirréttur sem gaman er að búa til |  
            |  |  
            | 200 g Síríus Konsum 70% súkkulaði 50 g smjör, mjúkt
 3 egg, aðskilin
 100 ml rjómi
 25 g flórsykur
 3 kíví
 200 g jarðarber
 ristaðar heslihnetur til skreytingar
 
 
 | Bræðið súkkulaðið ásamt smjörinu í vatnsbaði. Aðskilijð eggin og stífþeytið eggjahvíturnar.
 Blandið eggjarauðum, rjóma og flórsykri saman í annarri skál. Hrærið eggjarauðublönduna saman við brædda súkkulaðið.
 Blandið stífþeyttu eggjahvítunum varlega saman við súkkulaðið með sleikju.
 Látið músina kólna aðeins.
 Afhýðið kívíið og maukið það. Maukið einnig jarðarberin.
 Takið 6 há og mjó glös og setjið 3 tsk. af jarðarberjamauki á botninn á hverju glasi; notið teskeið með löngu skafti.
 Setjið súkkulaðimúsina í sprautupoka með löngum stút og sprautið svolitlu af henni í hvert glas.
 Setjið 3 tsk. af kívímauki ofan á súkklaðiðmúsina og sprautið síðan öðru lagi af súkkulaðimús ofan á.
 Skreytið glösin með hnetum. Raðið glösunum á bakka og og kælið músina í minnst 2 klukkustundir í ísskáp.
 
 Þeim sem vilja fara einföldu leiðina er alveg óhætt að bera músina staka fram með ávaxtamaukinu til hliðar.
 
 |  
            |  |  
            | Sendandi: Nafnlaus | 29/12/2009 |  
	   Prenta út 
 |     |   |