1 dl rjómi 
3 ræmur af appelsínuberki (gula lagið) 
100 g Síríus rjómasúkkulaði, saxað 
100 g Síríus Konsum Orange súkkulaði, saxað 
1 msk. Grand Marnier líkjör (má sleppa) 
 
Til að dýfa ofan í: 
Appelsínubitar, ferskur ananas, jarðarber, perur, kíví, mandarínur, fíkjur, kirsuber o.fl. 
              
               
             | 
             
              
Hellið rjómanum í pott, bætið appelsínuberkinum út í og hitið að suðu. 
Takið pottinn strax af hellunni og leyfið rjómanum að bíða í 30 mínútur svo að hann drekki í sig bragðið af appelsínuberkinum.  
Takið appelsínubörkinn upp úr. Hitið rjómann aftur að suðu. Setjið saxað súkkulaðið í skál og hellið rjómanum yfir.  
Látið líða 30 sekúndur og hrærið svo í þar til súkkulaðið hefur bráðnað og blandan er slétt og samfelld.  
Hrærið Grand Marnier saman við, hellið í fondue-pott og berið fram strax. 
              
               
             |