| 
 
 
    |   |   |   | 
         
          
          
            | Musli | Sérfæði |  
            | börnum finnst þetta frábært, hollt og gott , gott sem nasl, og út í AB mjólk. Gott við hægðatregðu mikið af trefjum. |  
            |  |  
            | 300 gr haframél 50  gr hveitikím
 50  gr hveitiklíð
 100 gr sesamfræ
 50  gr sólblómafræ(má sleppa og setja í á eftir ef vill)
 50 gr kókósmél eða spænir (mylja þær aðeins)
 100 gr malaðar hnetur
 1 dl hunang eða agavesyróp(lítill sykurstuðull)má nota púðursykur
 2 dl vatn
 2 tsk salt
 1 dl olía ekki bragðmikil
 1 tsk kanill ef vill
 
 svo má skipta yfir með ýmis korn og fræ eftir smekk.
 
 
 
 | . Hunang vatn olía (og sykur ef han er notaður) salt blandað saman og hellt yfir þurrefnin öllum þurrefnum blandað saman í ofnskúffu og velt og klipið saman.
 nema rúsínunum sem eru settar í eftir þurkun.
 
 þurkað í 200°C heitum ofni í um 1/2 - 1 klst og hrært í á meðan öðru hvoru og þá myndast smá kögglar ekki samt gott að hafa þá of stóra.Passa vel að þurka þetta vel annars getur þetta skemmst,geymist í krukku.
 
 |  
            |  |  
            | Sendandi: Oddný Mattadóttir <oddny@mitt.is> | 12/07/2006 |  
	   Prenta út 
 |     |   |