Súkkulaðilúxus með jarðarberjum og rjóma

Brauð og kökur

Ekta Súkkulaði kaka

Efni:
4 stk egg
255 gr. sykur
200 gr. smjör
200 gr. suðusúkkulaði
150 gr. heslihnetur
55 gr. hveiti

Meðhöndlun
Þeytið saman egg og sykur í stífa froðu. Bræðið í potti smjör og súkkulaði og látið rjúka. Blandið smjörblöndunni út í eggjahræruna ásamt hveitinu og smátt möluðum hnetunum. Bakið í smurðu hringlaga móti 24-26 sm í þvermál á neðstu rim í ofni við 170°C í 50-60 mín.

Sendandi: Beta <beta@skyrr.is> (30/06/2006)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi