Brúnkaka án eggja

Brauð og kökur

súkkulaðikaka

Efni:
4 1/2 dl hveiti
3 dl púðursykur
3 msk. kakó
3 tsk. lyftiduft
2 tsk. vanilludropar
1 dl mjólk
1 dl mjúkt smjör
1 dl soðid vatn

Meðhöndlun
Blandið þurrefnunum vel saman í skál og bætið mjólk og smjöri út í. Hrærið vel og setjið að síðustu soðna vatnið út í. Hrærið vel. Hellið í vel smurt form og bakið við 175°C í 40-45 mín. Kælið botninn og setjið súkkulaðikrem ofan á. Í staðinn fyrir kakó má setja 2 stappaða banana eða 1 dl eplamauk.

Sendandi: Nafnlaus (12/03/2006)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi