Eplakaka hollustupíunnar

Sérfæði

Skelfilega góð kaka, einu sinni á diskinn, ekkert samviskubit!

Efni:
175 gr. sigtað speltmjöl (td frá Aurion)
50 gr hrásykur
2 tsk kanill
1 tsk fínt sjávarsalt
3 dl Dinkel-flakes "Spielberger" frá demeter
6-8 græn epli
120 gr. Smjörvi

Meðhöndlun
Hrásykri, kanil, hveiti og salti blandað saman. Grófmyljið spelt-flakes saman við. Bræðið Smjörvan og gluðið saman við.
Eplin kjarnhreinsuð og skorin í bita. Eplum blandað saman við blönduna og bakað í ofni í u.þ.b. 40 mín. á 200°C.
Mjög gott! Eflaust hægt að saxa döðlur í staðinn fyrir hrásykurinn. Á eftir að prófa það. Berið fram með Provamel soyarjóma (hann þeytist ekki) eða Soyatoo Soya Topping Creme. (eða bara rjóma ef ekkert mjólkuróþol er til staðar).

Sendandi: Friðrika Kr. Stefánsdóttir <fridrika@flott.is> (12/12/2005)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi