Allt í einum potti

Kjötréttir

Kjúklingur, kartöflur og grænmeti allt eldað saman. Aðeins einn ofnpottur að vaska upp

Efni:
Kjúklingur
Sítróna
3´hvítlaukar
4 bökunarkartöflur
1 rauðlaukur
4 tómatar
1 zuccini
sveppir

Meðhöndlun
Setjið niðurskorna sítrónu inn í kjúklinginn og kryddið hann eins og vanalega, gott að krydda með smá chayenna pipar. Setjið í ofnpott og takið hvítlaukana í nokkra hluta og setjið í kringum kjúklinginn. (óþarfi að flysja)Skerið bökunarkartöflur í tvennt og kryddið sárið með paprikudufti og setjið í pottinn. Skvettið smá vatni og olíu yfir og eldið eins og venjulegan kjúkling í ofni. Þegar 30 mín eru eftir af steikingartímanum setjið þið gróft niðurskorið grænmetið ofaní pottinn og látið malla. Passið að það sé alltaf vökvi í pottinum.
Nú eruð þið komin með kjúkliong, kartöflur og grænmeti og notið soðið sem sósu. Alveg bráðhollt og lygilega gott.

Sendandi: Hugrún <ariel@visir.is> (10/03/2004)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi