Rabarbarakaka

Brauð og kökur

Handa 5-7 manns. Bragðast vel með rjóma.

Efni:
400 gr rabarbari
1/2 dl hveiti
2 egg
2 1/2 dl sykur
---
1 3/4 dl hveiti
1 1/2 dl púðursykur
50 gr smjör

Meðhöndlun
Hitið ofninn í 200°C. Rabarbarinn þveginn og skorinn í ca. 2 cm bita.
Blandið saman rabarbara, hveiti, sykri og eggjum og setjið í smurt, eldfast mót.
Myljið saman hveiti,púðursykur og smjör og dreifið yfir rabarbarann. Bakið í ca.
45 mínútur. Borin fram volg með rjóma.

Sendandi: Atli (06/09/1996)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi