Saltað hrossakjöt

Kjötréttir

Uppáhaldið mitt, hátíðamatur ef fleirum þætti góður :-)

Efni:
Saltað hrossakjöt (því feitara því mýkra og betra)
2-3 lárviðarlauf

Meðhöndlun
Kjötið með lárviðarlaufunum er sett í pott með miklu vatni, látið vatnið fljóta vel yfir kjötið því suðan tekur langan tíma og þessvegna verða nokkur afföll af vatninu.

Kjötið er svo soðið í 2 1/2 til 3 tíma. Því feitara sem kjötið er því minni tíma tekur suðan, en samt aldrei minna en tvo tíma.

Þegar ca. hálftími er eftir af suðunni er hægt að setja rófur út í og láta sjóða með kjötinu og jafnvel kartöflur líka.

Sumum finnst líka gott að hafa hálfan lauk með í suðunni.

Alger snilld með soðnum kartöflum, smjöri (alvöru) og nýmjólk.

Ekki beint til að kæta heilsufræðingana. ;-)

Sendandi: Ingimar Róbertsson <iar@pjus.is> (03/05/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi