Pylsur í grjónum

Óskilgreindar uppskriftir

Fljótlegur, auðveldur og góður sænskur réttur

Efni:
1 stór pylsupakki
1-2 laukar
3 dl. hrísgrjón
1 teningur kjötkraftur
2 msk. tómatpuré
Hvítur pipar
Salt
5 dl. vatn
Matarolía


Meðhöndlun
Skerið 1-2 lauka í skífur og steikið þá í matarolíu í potti.
Skerið pylsur í litla bita og bætið í pottinn ásamt hrísgrjónum, kjötkrafti, tómatpuré og vatni. Bætið einnig smá hvítum pipar og salti saman við. Látið sjóða í 12 mín við hitastillingu 1-2. Hrærið í af og til. Slökkvið þá á hellunni og látið krauma í aðrar 12 mín. með lokið á pottinum.
Gott að hafa heitt brauð með, td. tómatbrauð eða hvítlauksbrauð.

Sendandi: Þórir Kjartansson <thorirk@skyrr.is> (14/04/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi