Smjörkökur
Smákökur og konfekt
- einfalt og ljúffengt
Efni:
2 bollar smjör
1 bolli púðursykur
1/4 tsk. salt
4 bollar hveiti
Meðhöndlun
Smjörið verður að vera við stofuhita.  Hitið ofninn á 150°C.  Hrærið smjörið þar til það er orðið eins og þeyttur rjómi, í sér.  Hrærið sykrinum út í.  Saltið.  Setjið hveitið út í, einn bolla í einu, hrærið eftir hvern bolla.  Hnoðið deigið á borði sem búið er að strá hveiti á.  Mótið kökur að þeirri lögun sem þið viljið.  Sniðugt að nota kökujárn.  Setjið á ósmurða plötu og bakið í 20 mín., eða þar til kökurnar eru orðnar ljósbrúnar.
Sendandi: Ylfa <ylfa77@hotmail.com> (08/04/2002)