Pasta með hvítlauk, sveppum og steinselju

Pizzur og pasta

Fljótlegt og gott

Efni:
300 g pasta
125 g sveppir
2 hvítlausrif
2 msk steinselja
Smjör
Ólífuolía
Salt og svartur pipar

Meðhöndlun
1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.

2. Saxið hvítlaukinn og steinseljuna og skerið sveppina í sneiðar.

3. Bræðið slatta af smjöri á pönnu og steikið hvílaukinn og sveppina.

4. Bætið pastanu út í ásamt smá skvettu af ólífuolíu.

5. Stráið steinseljunni yfir og kryddið með salti og svörtum pipar.

6. Berið fram með grófu brauði. Uppskriftin er fyrir tvo.

Sendandi: Eygló <eyglot@simnet.is> (16/03/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi