Geggjuð ostakaka

Brauð og kökur

Eitthvað sem þú verður að prófa
Fékk þessa uppskrift hjá vinkonu minni sem fékk hana hjá vinkonu sinni

Efni:
Ostakaka

Botn:
1 pk. Hafrakex (Bónus eða Frón)
1/3 ds. Smjörvi

Fylling:
1 askja rjómaostur (400 gr.)
½ líter rjómi, þeyttur
4 dl. flórsykur

Ofan á:
1 krukka kirsuberjasósa (den Gamle danske)

Meðhöndlun
Smjörvinn bræddur og kexið mulið og hrært saman við. Sett í botninn á skál/formi.
Hræra vel saman rjómaost og flórsykur og loks þeytta rjómanum hrært varlega saman við. Hellt yfir kexbotninn.
Yfir þetta hellirðu svo kirsuberjasósunni

Sendandi: Beta Ásmundsdóttir <beta@skyrr.is> (23/01/2002)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi