Piparkökur

Smákökur og konfekt

Hentugar því degið þarf ekki að standa yfir nótt.

Efni:
500 gr hveiti
250 gr sykur
250 gr smjörlíki
375 gr sýróp
6 tsk lyftiduft
2 tsk matarsódi
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 tsk kakó
1 tsk season all
1 tsk engifer
1 tsk pipar (hvítur)
1 egg

Meðhöndlun
Hrærið öllu saman í skál. Ágætt að setja blautefnin fyrst.
Hnoðið deigið, fletjið út og mótið í þunn munstur eða litlar kúlur.
Bakist við 175 gráður í 10 til 12 mínútur.

Ath. Sum piparkökudeig þurfa að standa í kæli marga tíma áður en þau eru notuð en þetta deig má baka strax.

Sendandi: Friðrika Kristín Stefánsdóttir <fridrika@flott.is> (02/12/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi