Hnetusmjörssmákökur

Smákökur og konfekt

'Eg var að prufa þessar og þær eru rosalega góðar!!!!!!!!!!!

Efni:
1 1/3 bolli hveiti
1.tsk natron
1/2 tsk salt
1/2 bolli púðursykur
1/2 bolli smjörlíki
1/2 bolli hnetusmjör
1 egg
2 msk.mjólk
1 tsk vanilludropar

Suðusúkkulaði til skrauts

Meðhöndlun
Hrærið saman öllu sem í deigið á að fara.Mótið kúlur og veltið þeim uppúr sykri.Bakið kökurnar við 200 gráður í 10-12 mín.Stingið hálfum súkkulaðibitum í kökurnar um leið og þær eru teknar út úr ofninum.

Sendandi: Harpa Júlíusdóttir <harpaj@simnet.is> (30/11/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi