Rjómasveppir.

Óskilgreindar uppskriftir

Gott meðlæti.

Efni:
45 gr smjör
1/3 bolli saxaður laukur
250 gr sveppir sneiddir(má nota dósasveppi)
11/2 tsk sojasósa
salt,pipar
1 peli rjómi

Meðhöndlun
Látið laukinn krauma í smjörinu þar til hann er meyr,bætið þá sveppum út í ásamt sojasósu, kryddið með salt og pipar. Látið krauma í 3 mín. Hrærið í öðru hverju,lækkið hitann.
Hellið rjómanum út í og látið malla þar til fer að þykkna í u.þ.b 10 mín.

Sendandi: Linda <alliv@mi.is> (11/10/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi