Heimilisfriður

Brauð og kökur

Þessa köku læt ég bara standa á borðinu því hún er kláruð eins og skot bæði af fjölskyldumeðlimum og gestum.

Efni:
1 bolli bráðið smjörlíki.
1 bolli hveiti.
1 bolli brytjaðar döðlur.
1 stk egg.
vanilludropar.
1 bolli sykur.
1 bolli haframjöl.
1 tsk lyftiduft.

Meðhöndlun
Öllu blandað saman í skál.Bakað í
einni köku við 170 til 180 í
25 til 30 min.
berið framm með rjóma eða ís.

Sendandi: kolbrún harpa halldórsdóttir <harpahall@visir.is> (10/10/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi