Geggjað saumaklúbbssalat

Ábætisréttir

Salat sem kemur virkilega á óvart

Efni:
1 dolla lítil majones
1 dolla sýrður rjómi
Ananaskurl (ekki safinn)
Blá vínber og græn vínber, skorin í tvennt
1 stk. rauð paprika
1 stk. græn paprika
¼ stk. blaðlaukur, smátt skorinn
1 stk. mexíkóostur
1 stk. hvítlauksostur

Meðhöndlun
Majones og sýrður rjomi er hrært saman og ananaskurlinu bætt útí. Allt hitt skorið í bita og síðan hrært saman við sósuna.
- borið fram með Ritzkexi eða grófum gerbollum.

Sendandi: Sigríður Ásbjarnardóttir <sigridas@naskef.navy.mil> (07/05/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi