Grænmetisídýfa - ótrúlega góð

Óskilgreindar uppskriftir

Þessi ídýfa er vel þess virði að prófa hana. Algjört lostæti.

Efni:
1 dolla mascarpone rjómaostur
1 dolla salsasósa
rauðlaukur
1 dolla sýrður rjómi
agúrka
tómatar

Meðhöndlun
Hrærið saman rjómaost (má vera bara venjulegur rjómaostur) og salsasósu og setjið í botn á fati. Saxið grænmetið smátt og stráið yfir. Takið svo sýrða rjómann og setjið litla turna af honum hér og hvar ofan á ídýfuna.

Frábært með mexikóskum flögum.

Sendandi: Hólmfríður <hofi@strik.is> (25/04/2001)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi