Fiskur með hrísgrjónum og sósu

Fiskréttir

Ofnbakaður fiskur með hrísgrjónum og kryddídýfu.

Efni:
Ýsuflök
Hrísgrjón
Kryddídýfa (eða sú ídýfa sem er í mestu uppáhaldi)
Sítrónupipar
Paprika
Tómatar
Ostur

Meðhöndlun
Hreinsa fiskinn og forsjóða hrísgrjónin. Setja grjónin á botninn í eldfast mót og þekja vel. Krydda fiskinn með sítrónupipar og setja ofan á hrísgrjónin og grænmetið þar ofan á. Hella sósunni (ídýfunni) ofan á allt og setja ost yfir.
Baka svo við 200 gráður þar til fiskurinn er soðinn og osturinn bráðinn. Gott er að hafa lok á mótinu en að taka það af í restina og setja ofninn á grill. Einnig er gott að hafa sítrónusneiðar á milli hrísgrjónanna og fisksins í staðin fyrir piparinn.

Sendandi: Þórdís Einarsdóttir <the@visir.is> (03/10/2000)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi