Ofnbakaður fiskur í paprikusósu

góður.

Efni:

ýsa eða þorskur, magn eftir fjölda matargesta (ég var með rúm 800 g)
1 box paprikusmurostur (250 g)
1 box sveppir (250 g)
1 púrrulaukur
2,5 dl rjómi + 0.5 dl mjólk (eða 3 dl matreiðslurjómi)
1 grænmetisteningur
smá cayenne pipar (farið varlega því hann er sterkur! Ég nota um 1/8 úr teskeið)
krydd lífsins frá Pottagöldrum (eða önnur krydd eftir smekk)
rifinn ostur
Hitið ofninn í 175°.

.

Meðhöndlun
Sneiðið sveppi og púrrlauk. Hitið olíu á pönnu og steikið sveppina og púrrlaukinn. Kryddið með kryddi lífsins (eða öðrum kryddum) og hellið rjóma yfir. Hrærið smurostinum saman við í skömmtum og bætið svo grænmetisteningi út í. Leyfið sósunni að sjóða við vægan hita á meðan fiskurinn er undirbúinn.

Skolið og þerrið fiskinn og leggið í eldfast mót. Kryddið með pipar og salti og hellið síðan sósunni yfir. Setjið rifinn ost yfir og eldið í 20 mínútur, eða þar til osturinn hefur fengið fallegan lit

Sendandi: Linda. (25/10/2015)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi