MEXÍKÓSK KJÚKLINGASÚPA Uppskrift fyrir u.þ.b. 5 - 6 manns

Óskilgreindar uppskriftir

frábær

Efni:



4 kjúklingabringur, smátt skornar (eða heill kjúklingur, skorinn í litla bita)
1 rauð paprika, smátt skorin

1 græn paprika, smátt skorin

1 gul paprika, smátt skorin

2 gulrætur, smátt skornar

1/2 blaðlaukur , smátt skorinn

2 hvítlauksgeirar

1 laukur , smátt skorinn

1/2 rautt chili, fræhreinsað og smátt skorið

2 msk olía

2 dós saxaðir tómatar

2 teningar af kjúklingakrafti

2 - 3 msk karrý

smá kjúklingakrydd

3 lítrar vatn

1 peli rjómi

1 dós tómatpúrra

200 g philadelphia rjómaostur með sweet chili

salt og nýmalaður pipar

Meðhöndlun
Hitið olíu á pönnu við vægan hita, saxið grænmetið smátt og steikið í smá stund á pönnunni, bara rétt til að fá smá gljáa. Setjið grænmetið í stóran pott, bætið vatninu , tómatpúrrunni, karrýinu, kjúklingateningum og söxuðum tómötum saman við, leyfið þessu að malla á meðan þið steikið kjúklinginn.

Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið á pönnu upp úr olíu í smá stund, kryddið til með kjúklingakryddi, salti og pipar. Bætið kjúklingnum við súpuna. Látið hana sjóða við vægan hita í 10 - 15 mín.

Að lokum fer rjóminn og rjómaosturinn saman við súpuna.Takið ykkur góðan tíma til að laga súpuna, ég leyfði henni að malla við vægan hita í um það bil klukkustund en þess þarf auðvitað ekki. Látið hana þó malla í lágmark 30 mín. Bragðbætið súpuna að vild, gæti verið að þið viljið meiri karrý eða meiri pipar. Mikilvægt að smakka sig til!

Berið súpuna fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos flögum, sem hver og einn bætir á sinn disk eftir smekk.

Sendandi: Linda (03/10/2012)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi