Daim sörur

Smákökur og konfekt

Ekki síðri en þessar raunverulegu

Efni:
Botn:
2 stk eggjahvítur
2 dl sykur
1/4 tsk lyftiduft
50 gr fínkurlað Daim

Krem:
2 stk eggjarauður
2 msk síróp
100 gr lint smjör
30 gr fínkurlað Daim
1/2 msk kakó

Hjúpur:
200 gr rjómasúkkulaði

Meðhöndlun
Botn:
Eggjahvítur stífþeyttar. Sykur settur út í og hrært vel. Daim og lyftiduft hrært varlega saman við með sleif. Sett á bökunarpappír á plötu með teskeið. Bakað við 160°C í 8-100 mín.

Krem:
Eggjarauður og síróp hrært vel saman. Smjörið er linað og hrært saman við og að lokum Daim og kakó. Sett á hverja köku og sett í frysti (ég set þær bara í kæli).

Hjúpur:
Brætt í vatnsbaði og kökurnar hjúpaðar og setta svo í frysti.

Sendandi: Beta <beta@skyrr.is> (19/12/2010)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi