Frönsk súkkulaðikaka

Brauð og kökur

Suddalega góð

Efni:


2 dl sykur og 4 egg þeytt veeeel saman

200 gr súkkulaði og 200 gr smjög brætt

hveiti 2 og 1/2 dl
lyftiduft 1 tsk

Meðhöndlun
Súkkulaði blandað varlega saman við eggjahræruna. Hveiti og lyftidufti bætt út í. Bakað í 15-18 (ég baka hana aldrei í meira en 15 þá er hún blaut og geggjuð) mín í 25 cm formi með lausum botni eða í eldföstu formi við 225 gráður í 15-18 mín. Á að falla í miðju. Fersk jarðaber sett í holuna. Langbest að hafa vanilluís með:) Hún klikkar ekki þessi:) Hún er mátuleg sem eftirréttur fyrir 9 manns

Fljótlegt og gott.

Sendandi: Linda (03/11/2010)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi