Smákökur milljónamæringsins

Ábætisréttir

16 stk

Efni:
125 g smjör, kalt
50 g sykur
175 g hveiti
150 g ristaðar macadamia-hnetur, jarðhnetur án hýðis eða afhýddar möndlur, gróft saxaðar

Karamellufylling og súkkulaðihjúpur:
115 g smjör
100 g sykur
1½ dl rjómi
2 msk. síróp
200 g Síríus rjómasúkkulaði, saxað
50 g Cadbury’s Dream hvítt súkkulaði

Meðhöndlun
Hitið ofninn í 150°C. Smyrjð ferkantaða ofnskúffu, 23 cm á kant, vel og klæðið hana að innan með bökunarpappír. Myljið smjör, sykur og hveiti saman í skál þar til úr verður mjúk mylsna.
Þrýstið mylsnunni á botninn á ofnskúffunni og þrýstið hnetunum þar ofan á. Bakið í 30 mínútur eða þar til botninn er orðinn ljósgylltur. Takið ofnskúffuna úr ofninum og kælið.

Karamellufylling og súkkulaðihjúpur:
Hitið 100 g af smjöri og sykurinn saman í potti við hægan hita í um 10 mínútur, eða þar til blandan er orðin þykk. Bætið rjómanum út í ásamt sírópinu, hitið blönduna að suðu og hrærið stöðugt í á meðan.
Lækkið hitann og hrærið vel í blöndunni í 5-10 mínútur, þar til karamellan er orðin þykk og gyllt að lit. Gætið þess að hræra vel niður í botninn og út með hliðunum. Ef brúnir blettir taka að myndast í karamellumassanum, bætið þá örlitlum rjóma út í. Hellið síðan karamellunni yfir mylsnubotninn og kælið í 20 mínútur.
Sjóðið 4 matskeiðar af vatni í djúpum potti og bætið rjómasúkkulaðinu út í ásamt afganginum af smjörinu (15 g). Hrærið stöðugt í þar til súkkulaðið er bráðið. Jafnið súkkulaðikreminu yfir kökuna og kælið í 2 klukkustundir. Bræðið hvíta súkkulaðið gætilega, dreifið því yfir með teskeið og skerið kökuna síðan í bita með heitum hníf.

Sendandi: Nafnlaus (29/12/2009)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi