Fiskur m/grjónum og karrý

Fiskréttir

Mjög auðveldur og fljótlegur réttur, vinsæll hjá börnum og fullorðnum.

Efni:
3. ýsuflök
grjón ( helst basmati )

sósa:
ca. 50. gr. smjör
hveiti
Madras karry milt ( eftir smekk )
1/2 tsk. garam masala ( má sleppa )
1/2 cumin ( má sleppa )
2.dl. kókosmjólk
mjólk

1/2 teningur grænmetiskraftur

Meðhöndlun
ýsan roðflett og skorin í bita.
Grjónin soðin samkvæmt leiðb. á pakka.
Grjónin sett í eldfast mót sem er búið að smyrja með smjöri (lítið)
Ýsan sett ofan á grjónin og sósunni hellt yfir.
Búa til mikla sósu þannig að grjónin nái að blotna alveg í gegn.
Setja inn í ofn á 200 gráður í 20. mín. ca.

Sósan:
Smjörið brætt og hveitið sett í, búin til smjörbolla.
Karrý, garam masala og cumin sett saman við smjörbolluna ( taka pottinn af hellunni á meðan )
Kókosmjólk og mjólk smá saman bætt út í.

Sendandi: Sólveig J. Adamsdóttir <hafstm@centrum.is> (25/03/1998)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi