Bananabrauðið besta

Brauð og kökur

Bananabrauð sem fyllt er af góðgæti en afskaplega einföld.

Efni:
2 egg
1 1/2 b. púðursykur (þeytt saman)

2 bollar hveiti
1 tsk. salt
1 tsk. natron
1 tsk. lyftiduft
1 bolli saxaðar döðlur
1 bolli möndlur/hnetur
2 - 3 bananar (stappaðir)

Meðhöndlun
Þurrefnunum blandað varlega saman við eggjahræruna. Uppskriftin passa í þrjú lítil langform eða tvö stór.

Bakað í ca. klukkutíma við 180°
Gott er að stinga prjóni í brauðið eftir 40 - 45 mín og sjá hvort nokkuð deig loðir við.

Best heitt með smj´öri og jafnvel osti.

Sendandi: Dagbjört Hjaltadóttir <gauiks@simnet.is> (27/07/2009)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi