Ernur

Smákökur og konfekt

Þarf ekki að baka í ofni!!!

Efni:

100g suðusúkkulaði konsum

2msk. rjómi

30g smjör

170g flórsykur

100g hakkaðar möndluflögur

25g kakó, Cadbury's


**HJÚPUR**

suðusúkkulaði konsum

Cadbury's kakó

Meðhöndlun
Bræðið súkkulaði, rjóma og smjör í potti við lágan hita. Blandið flórsykri, kakói og möndlum vel saman við súkkulaðiblönduna og mótið kúlur. Kælið og hjúpið með suðusúkkulaði, veltið upp úr kakói og dustið vel af. Einnig er gott að setja saman við rommkúlur eða einhvern góðan líkjör.

Sendandi: Dísa (02/04/2009)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi