Hrísgrjóna og linsubaunasteik/buff

Grænmetisréttir

hollt og mjög gott.

Efni:

Hrísgrjóna og linsubuff/ steik.

500gr soðin brún hrísgrjón.
500gr ósoðnar rauðar linsur.( soðnar í 15-20 mín,

gott er að láta 1 grænmetistening út í vatnið)
2-3 mtsk kartöflumjöl.
5 mtsk haframjöl.
3 grænmetis teningar,muldir út í.
2 stórir hvítlaukar saxaðir.
salt, pipar.season all, villibráðarkrydd, eða eftir

smekk. Baunirnar sigtaðar.

Meðhöndlun







.


Öllu hrært vel saman.Þetta er þó nokkuð stór

uppskrift.Mót er vel smurt með olíu, rasp, hnetur,eða

haframjölstráð er yfir botninná mótinu,hrærunni er

jafnað vel í mótið og sléttað yfir.smá olíu smurt

ofan á ,síðan raspi, haframjöli, eða hnetuflögum

stráð ofan á,allt eftir smekk. bakað í ofni í 25-30

mín við °180-200.gr.

Meðlæti: Kartöflur, salat, sveppasósa,eða aðrar góðar

sósur.
Þegar að steikin er köld er mjög auðvelt að skera

hana í sneiðar,steikja í olíu á pönnu ,krydda

smávegis.
og bera fram með öllu því sem fólki dettur í hug.
Hægt er að nota þessa uppskrift í grænmetisborgara,

nota þá minna af hvítlauk og nota hamborgarakrydd.
Eins má búa til buff með steiktum lauk, rauðkáli og

grænum baunum osf.Betra er að velta buffinu upp úr

heilhveiti eða öðru mjöli, áður en steikt er.
Verði ykkur að góðu.



Sendandi: Jóhanna M Finnbogadótttir. Vestmannaeyjum. <hanna@visir.is> (12/07/2008)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi