pasta í beikonostasósu

Pizzur og pasta

pasta í beikonostasósu fyrir 5-6

Efni:
1 poki pasta(má vera hvernig pasta sem er)
1 dós af beikonosti
1 dl af mjólk
1 niðurskorinn laukur
10-15 niðurskornir sveppir
(má bæta papriku og fleira grænmeti við.)

Meðhöndlun
Sósan er soðin í litlum potti. Á meðan það er gert er pastað soðið og grænmetið skorið. Setjið grænmetið í stóra skál. Sigtið þá pastað og setjið í skálina. látið sósuna í og munið að hræra reglulega í henni svo hún brenni ekki í botnin, því hún er vís við að gera það.

Sendandi: Þórdís mjöll Böðvarsdóttir <ddiissaa@gmail.com> (15/05/2008)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi