Jólarjómahorn

Brauð og kökur

Mjög góð horn

Efni:
100 gr. smjörlíki
300 gr. hveiti
1 tsk. sykur
1 tsk. salt
4 tsk. þurrger (1 bréf).
1 dl. rjómi
1 egg.

Fylling fer eftir smekk hvers og eins.Það getu t.d. verið súkkulaði,smurostur eða skinka og ostur.

Meðhöndlun
Blandið öllu saman og hnoðið vel.Látið lyfta sér í 1-2 klst. skipt í 2- 4 parta breitt út og skorið eftir diski og skipt í 6 hluta fylling sett á breiðari hlutan og rúllað upp, penslað með (hrærðu) eggi.
Bakað við 200 C þar til orðin fallega brún.

Sendandi: Ingunn Kjartansdótti <ingunn@vortex.is.> (19/04/2008)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi