Kindalundir með sætri indverskri sósu

Kjötréttir

Einfaldur og fljótlegur réttur sem tengir ítalskt og indverkst.

Efni:
Kjötið og marenering:
600 gr. Kindalundir
Hálf sítróna
2 msk grænt Pestó
Salt og pipar
Olía
smá timían

Sósan:
1-2 msk olía
1 laukur
3 hvítlaukslauf
Tæp lúka af möndlum
1-2 cm engiferkubbur
Hálf dós af hökkuðum tómötum
Hálf lítil dós af kókosmjólk
2 tsk karrý
3 tsk Kanill
1 lambakraftsteningur

Meðhöndlun
Aðferð:
Snyrtið lundirnar og skerið þær í þægilega bita. Ekki samt gúllasbita og ekki steikarbita. Ein lund ætti að vera um 4-5 bitar. Setjið svo pestóið, safa úr hálfri sítrónu, smá olíu, salt og pipar eftir smekk og smá timían í poka og hristið saman og nuddið í kjötið. Því lengar sem þetta geymist því betra verður það á bragðið.

Saxið hvítlaukin, laukin, engiferið, möndlunar og steikið uppúr olínunni á pönnu. Þegar þetta er farið að mýkjast og litast bætið þá kókósmjólkinni og tómötunum í. Því næst kryddinu og kjötkraftinum. Steikið/sjóðið í um 5-10 mín. Setjið svo sósuna/gumsið í eldfast mót og steikið kjötið létt á pönnunni þar til það er fallega brúnt á öllum hliðum.
Raðið svo kjötbitunum ofan á sósuna/gumsið eða blandið saman.
Hitið í ofni í um 10 mín við 180°

Sendandi: Óttar G. Birgisson <ogb1@hi.is> (17/02/2008)


UppskriftaWWWefurinn - www.eldhus.is
Ingimar og Siggi